viðspyrnustyrkir.
Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið. Hvað finnst hv. þingmanni um þær áhyggjur sem komu fram meðal gesta sem komu á fund efnahags- og viðskiptanefndar af því að það væri í raun markvisst, með miklum seinagangi í þessari síðustu bylgju Covid, sem hún vonandi er, verið að reyna að knýja fram ákveðna samþjöppun í ferðaþjónustu, t.d. með vísan til þessara orða í greinargerð, til þeirra greininga sem hafa verið unnar fyrir Ferðamálastofu? Hefur hv. þingmaður skilning á því að þetta sé tilfinning fólks í greininni, smærri rekstraraðila í ferðaþjónustu sem hafa þurft að bíða lengi eftir stuðningi og þurftu í upphafi Covid að bíða í marga mánuði eftir almennum rekstrarstyrkjum eins og voru veittir víða í nágrannalöndunum?