viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég mátti til með að koma hér upp vegna þeirra orða sem hún lét falla um séreignarsparnað. Það mál stendur mér svolítið nærri og ég hef fylgst með því af miklum áhuga hve ríkisstjórnin er dugleg við að leyfa almennum borgurum að taka lán hjá sjálfum sér, lán í sinni framtíð, og hversu mjög sú aðgerð eykur á ójöfnuð. Við erum annars vegar að horfa á fólk sem á eignir, sem á fasteignir sem það getur þá greitt séreignarsparnaðinn inn á skattfrjálst og þannig lækkað lánin sín, fengið þannig töluvert út úr þessu í meiri eign í fasteigninni sinni og án þess að borga skatt af því. Síðan höfum við fólk sem ekki á eignir sem við vitum að er að stærstum hluta það fólk sem fór verst út úr þessum faraldri og það fær að taka út sparnaðinn sinn en borgar skatt af honum. Það er gríðarlegur aðstöðumunur þarna á milli. Ótrúlega mikið óréttlæti í þessu, finnst mér. Þetta er fólk sem hefur í raun ekki í neitt annað að leita en að ganga á ævisparnaðinn sinn, þarf að borga af því skatt og fær engan annars konar stuðning frá hinu opinbera. Ég vildi bara koma hingað upp til að þakka hv. þingmanni fyrir að koma með þennan vinkil inn í þessa umræðu. Það er viðvarandi þema að þegar kemur að fyrirtækjum og fjármagni þá eru skilyrðin afskaplega fá og takmörkuð en þegar kemur að einstaklingum er mjög litla hjálp að fá, en sú hjálp sem þó er í boði virðist hreinlega til þess fallin að ýta undir ójöfnuð á Íslandi.
Ég spyr hvort hv. þingmaður sé sammála mér í þessari greiningu minni.