viðspyrnustyrkir.
Forseti. Já, ég er algerlega sammála þessari greiningu. Þær lausnir sem hafa verið í boði fyrir heimilin eru í raun engar lausnir. Eftir hrun gerðu þessar svokölluðu lausnir í raun ekkert annað en að lengja í snörunni, gerðu ekki neitt annað, og leiddu jafnvel til þess að fólk var í verri málum en það annars hefði verið. Hvað varðar séreignarsparnaðinn þá verð ég oft reið þegar talað er um það sem lausn. Þetta er ekki lausn. Við eigum bæði að geta borgað af húsnæðinu okkar og safnað til efri áranna. Það getur fólk í löndum sem við berum okkur saman við. Það á líka að vera hægt hér. En það er ekki í boði. Við eigum að nota séreignarsparnaðinn. Það má aldrei nokkurn tímann biðja bankana um að lækka nokkurn skapaðan hlut hjá sér, slá af arðsemiskröfum, vöxtum eða einu eða neinu, en við fáum aðstoð við að standa undir kröfum þeirra sem við borgum samt sjálf. Við fáum náðarsamlegast að taka út okkar eigin peninga til að borga í þá hít sem þarna er. Þetta nær ekki nokkurri einustu átt. Ef fólk lendir svo í því, eins og ég nefndi, að þetta dugar jafnvel ekki til — fólk reynir allt en missir kannski á endanum húsnæði sitt — þá stendur það enn verr að vígi en áður. Við vitum öll að það er ekkert gamanmál að vera gamall á Íslandi ef maður skuldar mikið í húsnæðinu sínu eða er á leigumarkaði. Þetta er eitthvað sem ekki gengur upp. Þær lausnir sem hægt er að fara í fyrir heimilin kosta ekki einu sinni neitt, eins og ég segi. Það eina sem gæti hugsanlega gerst væri að bankarnir myndu ekki græða alveg jafn mikið en enginn kostnaður, ekki neinn kostnaður.