152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:29]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, mér er sérstaklega umhugað um þennan hóp sem á enga eign og neyðist, til að eiga fyrir daglegum útgjöldum, til að taka út séreignarsparnað sinn. Ég minnist á þetta vegna þess að ég las af mikill athygli fyrir kosningar mjög góð úttekt frá ASÍ um Covid-aðgerðir ríkisstjórnarinnar og ójöfnuð. Það leiddi mig að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórnin hefði brugðist þeim hópi sem varð hvað verst úti í faraldrinum. Það er láglaunafólk, það eru innflytjendur, það eru öryrkjar, aldraðir og fólk sem var í bágri stöðu fyrir faraldurinn. Við vitum að þeir sem misstu vinnuna í faraldrinum voru með talsvert lægri meðallaun en gengur og gerist á Íslandi, 26–30% lægri laun en er miðgildi launa á Íslandi. Fólk var þá þegar með afar lágar tekjur. Síðan lækkuðu þær gríðarlega við það að fólk lenti á atvinnuleysisskrá. Þetta er hópurinn sem ríkisstjórnin segir við: Heyrðu, ef þið hafið náð að nurla saman einhverjum séreignarsparnaði þá getið þið gengið á hann núna. Það er hópurinn sem á ekki húsnæði, er ekki með húsnæðislán til að dæla séreignarsparnaðinum inn á og hefur ekki aðgang að lánsfjármagni. Ég hef bara ekki séð að nokkuð hafi verið gert fyrir þennan hóp nema kannski mögulega það að hækka atvinnuleysisbætur lítillega. Til að bæta gráu ofan á svart var það gert alveg skýrt að ef fólk tæki ekki hvaða vinnu sem er, burt séð frá því hvort það henti fólki, högum þess, menntun, þá myndi það missa atvinnuleysisbæturnar. Þetta var gert alveg skýrt af þeirri náðarsamlegu ríkisstjórn sem situr hér.