viðspyrnustyrkir.
Forseti. Já, það er náttúrlega þannig að þeir sem minnst hafa standa alltaf verst að vígi. Þeir hafa ekki borð fyrir báru til að bregðast við þegar áföll ganga yfir. Við í Flokki fólksins höfum margoft komið inn á það að hér er fólk sem á ekki til hnífs og skeiðar. Allar hækkanir, sama hvers eðlis þær eru, koma rosalega illa við þann hóp. Ég hef lagt fram frumvarp um þak á verðtryggingu í eitt ár, bæði á lánum og á leigu, og það er til þess að mæta hópnum sem stendur verst að vígi. Það er enginn með verðtryggð lán nema þeir sem standa verst að vígi og það er enginn á leigumarkaði nema þeir sem standa enn verr að vígi en þeir sem þó hafa náð að kaupa sér húsnæði með verðtryggðum lánum. Þetta er fólk sem hefur ekkert á milli handanna. Það munar um hvern einasta þúsundkall. Leiga hefur þegar hækkað um tugi þúsunda, dæmi eru um að leiga hafi hækkað um 30.000 kr. nú þegar. Þetta eru peningar sem eru ekki til á þessum heimilum, þeir eru bara ekki til. Og hvað á að verða um þetta fólk? Við verðum að hugsa um þetta. Það þýðir ekki að við berum meiri virðingu fyrir hagnaðarkröfum bankanna, eða hvað það er kallað, en lífsafkomu fólks, en því að fólk hafi nóg til hnífs og skeiðar. Það er ekki í lagi. Við verðum að fara í rótina á málinu og það er ekki endilega að hjálpa okkur að borga meira til bankanna heldur skipa bönkunum að lækka vexti. Það er rótin að þessu og þar með værum við komin í góð mál, eða nokkuð góð.