152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:34]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara að koma hingað upp örstutt til að taka til máls um þau úrræði sem við erum að ræða í dag, lokunar- og viðspyrnustyrki. Umræðan var nú komin aðeins út í aðra sálma, þótt vissulega hafi verið þörf á því. En mig langaði til að taka undir með framsögu hv. varaformanns nefndarinnar og þakka nefndinni allri kærlega fyrir samstarfið. Ég tek undir með hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um að þetta hafi verið unnið bæði hratt og örugglega í nefndinni og þakka ég samstarfið.

Svo langaði mig að halda einu sjónarmiði á lofti sem er að þau úrræði sem við erum að ræða í dag, svokallaðir lokunar- og viðspyrnustyrkir, fjárstuðningur hvers konar, eru eiginlegar bætur. Þetta eru bætur til handa fyrirtækjum sem hafa beðið tjón og sannarlega beðið tjón vegna aðgerða stjórnvalda. Til að geta þegið þessa styrki eða bætur þurfa þau að geta sýnt fram á að hafa orðið fyrir tjóni. Það var þetta sem mig langaði til að halda á lofti í dag, það má ekki gleymast.