152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:46]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir þessarar áréttingar og jafnframt fyrir mjög gott samstarf í nefndinni meðan á meðferð þessa máls stóð.

Hv. þingmaður fór yfir nokkrar staðreyndir og ákveðna fakta, ef ég má segja sem svo. Mig langar að gera slíkt hið sama. Að sjálfsögðu eigum við að taka höndum utan um þessi minni fyrirtæki. Þetta er hryggjarstykkið í okkar samfélagi, að minni fyrirtækin, lítil og meðalstór fyrirtæki, nái að þrífast hérna.

Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson benti á eru jakkafataklæddir menn á leið um mitt kjördæmi, Suðurkjördæmi, að reyna að kaupa upp aðila sem eru að verða búnir, eru komnir að þolmörkum. Ég hef ekki skýringar á því af hverju þetta kom ekki fram 17. janúar. Fyrst við erum að fara yfir staðreyndir þá kom þing saman 17. janúar eftir að hafa klárað fjárlög sem tóku upp nánast allan okkar tíma í desemberþinginu. Að því sögðu tel ég mikilvægt að við klárum þetta mál. Við erum vonandi á leiðinni út úr þessum faraldri og ég tel mikilvægt að við klárum það fljótt og örugglega eins og við höfum oft rætt. Við getum lengi velt fyrir okkur af hverju þetta kom ekki fram fyrr og af hverju þetta er að koma fram núna en ekki fyrir þremur vikum eða fyrir mánuði. Við breytum því ekki núna. Við þurfum að klára þetta og koma þessu í gegnum þingið svo við getum haldið áfram að koma þessum styrkjum út til þeirra fyrirtækja sem þurfa mest á því að halda.