152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[17:48]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er alveg sammála að samstarfið hefur gengið vel í nefndinni. Mér hefur fundist nefndin vinna þetta mál hratt og vel eins og ég hef áður sagt í þessum ræðustól. Það sem ég gagnrýndi var að það lá fyrir í byrjun desember að þessara viðbragða væri þörf og að í raun endurflutningur á frumvarpi sem áður hefur verið afgreitt hér hafi beðið í a.m.k. einn og hálfan mánuð, mál sem við hefðum vel getað afgreitt fyrir jól. Af hverju segi ég það? Vegna þess að þetta er sambærilegt í öllum atriðum við annað mál sem þingið hefur nú þegar afgreitt. Það þarf ekki að eyða allt of löngum tíma í slík mál á meðan það er tiltölulega óumdeilt. Hæstv. fjármálaráðherra kemur fram í byrjun desember og segir: Heyrðu, já, það er alveg ótrúlegt hvað liggur mikið á að gera þetta — og gerir svo ekkert á þeim tíma sem hann hefur. Síðan hefur meiri hluti þingsins, bara svona til að halda því til haga, alveg vald til að kalla þing saman fyrir 17. janúar. Það er engin heilög dagsetning sem ekki er hægt að hrófla við og einhvers konar „force majeure“, virðulegi forseti, að ekki sé hægt að bregðast við fyrr eða ekki hægt að koma saman fyrr. Það lá bara þannig á fólki að það vildi hafa sitt frí til 17. janúar. Það lá fyrir 10. desember þegar hæstv. fjármálaráðherra talaði um nauðsyn á aðgerðum. Þannig að hver ber ábyrgðina á því að koma hlutum til framkvæmda? Og hver er ósögð stefna á bak við það að bíða í tvo mánuði með að leggja fram frumvarp sem er í öllum efnisatriðum eins og annað, sambærilegt frumvarp sem einfaldlega framlengir úrræðið um fjóra mánuði þegar það er í raun ekkert mál fyrir stærri fyrirtæki að bíða af sér svona þrengingar en það getur verið banabiti fyrir þau smærri?