viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir margt.
Umsóknarfrestur viðspyrnustyrkja síðast var til 31. desember. Nú er ég ekki alveg með skýringar á því innan úr ráðuneytinu hvers vegna þetta var lagt fram 1. febrúar en ekki 1. janúar. En ef ég ætti að íhuga hvers vegna gæti verið eitthvað sem ég myndi kannski leiða hugann að. Ég hef ekki þau svör sem ég veit að hv. þingmaður er að leita eftir en ég tel mikilvægt að við séum ekki að lengja umræðuna mikið meira og klárum þetta mál.