viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður þarf engar áhyggjur að hafa, þetta mál klárast í umræðu í dag og fer í atkvæðagreiðslu á morgun og verður þar með að lögum og ég hef lítið um það að segja annað en að taka þátt í umræðum hér í 2. umr., sem er jú stærsti vettvangur þingmanna til að ræða mikilvæg mál. Ég hef engar áhyggjur af því að þetta mál rati ekki í atkvæðagreiðslu á morgun. Ég sé engin merki um nokkuð annað, burt séð frá því hvað ég tek mörg andsvör við hv. þingmenn eða meira að segja margar ræður hér í þessum ræðustól. Það breytir því ekki að það verður eflaust atkvæðagreiðsla um þetta hérna á morgun og ég efast ekki um annað en að þetta verði meira að segja bara að lögum á morgun, þekki ég hæstv. forseta Alþingis rétt. Mér þykir það alla vega mjög líklegt miðað við að á morgun er síðasti dagur vikunnar til þess að gera mál að lögum.
Hv. þingmaður talaði um að hún hefði ekki þau svör sem ég leitaði að. Gott og vel. Hv. þingmaður hefur kannski aðeins greiðari aðgang að, eigum við að segja hugsanagangi hæstv. fjármálaráðherra með að draga svona lappirnar heldur en ég. Þar af leiðandi spyr ég hv. þingmenn hvort þeir hafi fengið einhverjar skýringar vegna þess að mér þykir alveg eðlilegt að stjórnarþingmenn spyrji ráðherra sína af hverju þeir dragi lappirnar með mál sem ætti í sjálfu sér að vera stórkostlega auðvelt að klára á réttum tíma. Það má nota bene alveg vera með smá fyrirsjáanleika í löggjöfinni og framlengja úrræði þótt þau séu ekki útrunnin. Við hefðum alveg getað græjað þetta í desember þótt fresturinn fyrir úrræðið sem var að renna út væri ekki runninn út, það er ekkert mál. Það sem stóð okkur fyrir þrifum, og var þá liðið í desember, var þetta leyfi frá EFTA fyrir ríkisaðstoð. Það var búið að græja þannig að það var ekkert sem stóð í vegi fyrir því að þetta mál yrði afgreitt í desember. Sú spurning stendur enn þá eftir, henni verður augljóslega ekki svarað hér en það er bara allt í góðu.