152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:15]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið því að þetta er mjög mikilvæg spurning. Fram kemur í þingsályktunartillögunni að kannaðir verði möguleikar á að ferjan verði knúin endurnýjanlegum orkugjöfum. Ég tel það koma mjög vel til greina að þessi ferja verði knúin rafmagni. En að sjálfsögðu þarf að skoða það, ef keypt eða smíðuð verður ferja sem knúin verður rafmagni, að þá þarf að sjálfsögðu líka að fara í innviðauppbyggingu á Brjánslæk og í Stykkishólmi, eða a.m.k. í Stykkishólmi, tel ég vera, svo hægt sé að hlaða batteríin og annað slíkt. Það er bara sjálfsögð innviðauppbygging, alveg eins og að laga hafnarmannvirki á svæðinu. Það er kominn tími til þess að þessi orkuskipti fari fram bæði til sjós og lands og þetta væri góð byrjun á því varðandi almenningssamgöngur.

Ég vil aðeins taka það fram líka varðandi þessa tillögu að þegar núverandi ferja var keypt var búið að finna aðra dýrari ferju, en það var bara keypt ódýrari týpa. Þessi tillaga miðast við að vilji Alþingis standi til að uppfylla nútímakröfur varðandi öryggi og þægindi.