152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:17]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi þakka hv. þingmanni fyrir góða framsögu, það kom margt í ljós í framsögunni. Ég efast alls ekki um mikilvægi Baldurs. Þetta er örugglega góður og virkilega þarfur samgöngumáti. En í þingsályktunartillögunni, og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson kom inn á þetta rétt áðan, segir, með leyfi forseta: „Kannaðir verði möguleikar á að ferjan verði knúin með endurnýjanlegum orkugjöfum.“ Kannaðir. Það er það sem ég ætla að spyrja aðeins út í og mig langar að spyrja hv. þingmann hvað við myndum gera ef endurnýjanlegir orkugjafar eru ekki tiltækir. Við búum á tímamótum loftslagsáhrifa og við erum að nálgast hættulegt stig loftslagsáhrifa þar sem verður kannski ekki snúið til baka. Því langar mig að spyrja: Tekur Flokkur fólksins ekki örugglega undir það að við þurfum að hafa grænar samgönguleiðir eða samgöngulausnir í fyrirrúmi?