kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það er rétt, það er sagt að kannaðir verði möguleikar á því að ferjan verði knúin af endurnýjanlegum orkugjöfum. Ég tel að það séu miklar líkur á því að hægt verði að finna ferju sem er knúin endurnýjanlegum orkugjöfum. Þegar talað er um raforku á skipum þá er það fyrst og fremst í ferjuflutningum, ferjur sem eru knúnar með endurnýjanlegum orkugjöfum. Togarar þurfa miklu meiri kraft, meiri hraða. Ég kannaði þetta sérstaklega varðandi smábáta. Það er raunverulega ekki í kortunum næstu árin, það vantar hraðann og kraftinn. En í ferjusiglingum þar sem er jafnari hraði myndi þetta henta vel. Hvað varðar orkuskipti í samgöngumálum á Íslandi þá erum við allt of aftarlega, við erum að byrja allt of seint á þeim. Ég bjó í Noregi í mörg ár og er meira að segja að fara þangað í fyrramálið, flutti út 2010, og Norðmenn eru langt á undan okkur. Noregur er þriðji stærsti markaður í heimi fyrir Teslur. Við erum rétt að byrja á þessari vegferð. Á Íslandi er ofgnótt af raforku og endurnýjanlegum orkugjöfum og ég tel að það verði ekki orkuskortur sem muni koma í veg fyrir að ferjan verði knúin með raforku, alls ekki. Það er frekar að innviði skorti, það verði út af innviðum og dreifikerfinu. Ég tel að við á Íslandi séum í alveg einstakri stöðu til að fara í orkuskipti í samgöngumálum og nota þá miklu raforku sem Íslendingar hafa til að knýja bílaflotann og ferjuflotann og byrja vegferðina á því að fara að knýja líka fiskiskipaflotann, sem mun taka langan tíma, m.a. út af tækniþróun.