152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:21]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það segir í þingsályktunartillögunni að ferjan eigi að uppfylla nútímakröfur um öryggi og þægindi í farþegaflutningum og geta sinnt vöruflutningum fyrir atvinnulíf og íbúa á Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Ég hef notað þessa ferju áratugum saman, Baldursferjurnar, frá því að ég var barn. Að fara í þessa ferju í dag er eins og að fara í þriðja heims skip. Eins og kom fram í framsögu minni þá er matsala niðri í kili og öll aðstaða er eins og að fara aftur í tímann. Ég er ekki að segja þetta í fyrsta skipti. Þetta er eins og fara aftur til svona „sixties“, 1960-stemning. Það vantar bara tónlistina. Það er mjög svipað, eins og að fara í tímavél. Svo eru það kröfurnar um öryggi. Það vantar t.d. varavél í Baldur og í fyrra eða hittiðfyrra var hætta á stórslysi með farþega af því að ferjan varð vélarvana og var að reka. Það er mjög mikilvægt að hún uppfylli öryggiskröfur og bara venjuleg þægindi. Það er ekki verið að tala um einhvern lúxus eða einhverja svítu, VIP, alls ekki, bara venjuleg nútímaþægindi.