kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.
Herra forseti. Ég þakka framsögumanni fyrir þessa umræðu og er á svipuðum nótum og aðrir hv. þingmenn hér inni. Við deilum þeirri skoðun og sýn að á þessu svæði séu gríðarleg tækifæri, í Breiðafirðinum og í kringum Breiðafjörðinn. Um Breiðafjörðinn sjálfan gilda t.d. sérstök lög, lög um vernd Breiðafjarðar, þar sem á einmitt að reyna að taka betur utan um mikilvægi svæðisins í samhengi náttúruverndar en jafnframt matarkistunnar sem Breiðafjörður er. Baldur eða þessi siglingaleið í dag er sannarlega samgönguæð yfir fjörðinn og ég held ekki að nokkur einstaklingur sjái fyrir sér að leggja hana af. En í ljósi þess sem hv. þingmaður segir, sem lýtur að ferðaþjónustu og tækifærunum sem henni fylgja beggja vegna fjarðar og í firðinum sjálfum, vil ég líka segja að í ágætri greinargerð, sem rekur í sögulegu samhengi sögu núverandi ferju og fyrirrennara hennar, við erum að nálgast 100 árin í þessu efni, er kveðið á um að ferjan uppfylli nútímakröfur, og vísar hv. þingmaður þar í öryggi og þægindi. Er þá ekki sjálfsögð nútímakrafa í samhengi loftslagsvárinnar fram undan, að ný ferja verði drifin af endurnýjanlegum orkugjöfum og alls ekki jarðefnaeldsneyti? Af því að ég skil tillöguna sjálfa þannig að því sé gefið undir fótinn að þarna geti verið ferja sem brenni jarðefnaeldsneyti, sem ég held að sé alger tímaskekkja og alls ekki í neinum takti við nútímakröfur.