152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:24]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er mjög góð ábending. Að sjálfsögðu ætti nútímakrafan að vera sú að ný ferja verði knúin endurnýjanlegum orkugjöfum. Þetta er eiginlega alveg frábært verkefni til að sýna fram á að stjórnvöldum sé alvara um orkuskipti í samgöngumálum. Ef einhvers staðar ætti að vera ferja knúin endurnýjanlegum orkugjöfum þá er það á Breiðafirði. Fjörðurinn er friðaður, algjör náttúruperla. Það eru þrír hlutir óteljandi á Íslandi; það eru eyjarnar á Breiðafirði, vötnin á Arnarvatnsheiði og hólarnir í Vatnsdal. Þetta væri góð kynning á orkustefnu stjórnvalda og myndi opna Breiðafjörð fyrir ferðamönnum.

Varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu þá eru ótæmandi möguleikar á þessu svæði varðandi ferðamennsku. Í gær var mælt fyrir frumvarpi um breytingu á stjórn fiskveiða sem er um öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni. Það frumvarp snýst nánast eingöngu um Breiðafjörðinn. Það er þörungavinnsla á svæðinu og er nú talað um að byggja nýja þörungavinnslu í Stykkishólmi. Þessi atvinnugrein mun stækka mikið í framtíðinni sem og efnavinnsla á þangi og þara. Þetta mun nýtast til ferðaþjónustu og mun klárlega fjölga íbúum á svæðinu. En nútímakrafan er, og það er alveg hárrétt, að það verði rafknúin ferja. Ef vilji Alþingis kæmi fram í þingsályktun hefði Vegagerðin það plagg til að fara með og kaupa nútímaferju sem er rafknúin.