kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.
Herra forseti. Það gleður mig stórlega að hv. þingmaður eyði þessum skilningi mínum á greinargerðinni. Og bara til að árétta það þá eru áform stjórnvalda afar skýr í þessu og það er gott að heyra og gott til þess að vita að þingflokkur Flokks fólksins tekur undir að orkuskipti séu jafn mikilvæg og þau eru. Það kemur ekki til greina annað, ef við ætlum að endurnýja mikilvæg samgöngutæki eins og ferjur og annað, en að þau séu knúin endurnýjanlegum orkugjöfum. Þannig að ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að vera skýr í þessu efni.