152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:26]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er mjög gott að heyra hve jákvæður hann er fyrir þessari tillögu til þingsályktunar um nýjan nútímalegan Baldur hvað varðar öryggi og nútímaþægindi og hvernig hann er knúinn. Ég vil benda á að hv. þingmaður er stjórnarþingmaður og ég vona að stjórnarmeirihlutinn taki jákvætt í þessa tillögu og hversu mikilvægt það er að ferjan sé knúin raforku. Það er umhverfismál. Hugsið ykkur ef olía færi að leka í Breiðafirðinum, ef skip myndi stranda. Það væri alveg hrikalegt ef það færu einhver þúsund tonn, ef ekki tugir eða hundruð tonna, af olíu á þetta svæði. Það er mikið æðarvarp þarna og gríðarlegur fjöldi eyja. Við gætum því öll verið stolt af því ef rafknúin ferja kæmi þarna. Það væri merki um að stjórnvöld tækju orkuskiptin alvarlega og væru tilbúin að leggja pening í þessa ferju. Það yrði mikil samgöngubót fyrir Vestfirði og Breiðafjörðinn að þarna kæmi rafknúin ferja.