152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:28]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Herra forseti. Ég er meðflutningsmaður að þessari tillögu um Breiðafjarðarferju. Þetta er mál sem ég hef lengi talað fyrir og ég þakka fyrsta flutningsmanni fyrir að bera málið fram og ég var mjög fús að taka þátt í því að fylgja þessu brýna máli eftir. Samgöngur um og yfir Breiðafjörð hafa verið og eru gríðarlegt hagsmunamál og hafa verið baráttumál byggðanna á svæðinu. Íbúar við Breiðafjörð og núna líka í vaxandi mæli Vestfirðingar nýta þessa leið og enn frekar í flutningum og slíku og það hefur ekki verið nægilega gott lag á þessu undanfarið eins og við vitum. Þar er margt að horfa til. Það þarf að vera hægt að komast greiðlega á milli staða og við þurfum líka að tryggja samgöngur við Flatey, þetta er líka öryggistæki. Þetta er flutningaleið, það eru möguleikar í ferðaþjónustu og slíkt. Síðan hefur í umræðunni verið komið inn á tækifærin sem við höfum til að láta þetta verða kannski eitt af stóru, nýju skrefunum sem við tökum í orkuskiptum og almenningssamgöngum, sem ætti jafnvel að vera hvatning fyrir stjórnvöld að gera þetta, að taka þetta sem sérstakt mál til að fylgja eftir og vera með umhverfisvæna, þess vegna rafknúna, ferju á þessari leið og stíga það skref, Það er spennandi tækifæri að geta tekið slíkt skref hratt og vel og haft forystu um að eitthvað gerist í þessu. Það er búið að ræða um þessi mál í allnokkur ár. Við þekkjum það að það varð næstum því slys, ekki langt síðan það varð, og það þarf að tryggja í alla staði að þetta sé örugg ferja.

Það eru svo mörg önnur og fleiri tækifæri sem skapast með því að tryggja þessar samgöngur til framtíðar. Hér var rætt um hvað skiptir máli í svona ferju. Jú, þægindi þurfa að vera til staðar. Hún þarf að vera örugg. Það er notagildið. Hún þarf líka að vera umhverfisvæn og bjóða upp á umhverfisvænan samgöngumáta. Ég kem hér upp bara til að undirstrika þessi atriði og hvers vegna ég tek þátt í að flytja þetta mál og vil fylgja því eftir. Ég vonast til að það fái góðan hljómgrunn hér í þinginu og góða meðferð og það muni eitthvað gerast fljótlega í þessum málum því að ég vil ekki sjá árin líða án þess að á þessu brýna hagsmunamáli byggðarlaganna á svæðinu verði tekið með afdráttarlausari hætti en verið hefur undanfarið.