152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:31]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og meðflutningsmanni með þessari tillögu fyrir ræðuna. Ég tek heils hugar undir allt sem hann segir og ég tel mikilvægt og mjög gott að þingmenn stjórnarmeirihlutans séu líka á þessari tillögu. Ég vonast til að þetta mál fái góðan meðbyr hjá þingmeirihlutanum líka. Mig langar að spyrja hv. þingmann um tímarammann. Telur hann að ferjan gæti ekki komið tiltölulega fljótt og við gætum jafnvel haldið upp á 100 ára afmæli Baldurs með nýrri rafknúinni, nútímavæddri og öruggri ferju fyrir Vestfirðinga og Breiðfirðinga? Ég tel að þetta sé gríðarlega mikil samgöngubót fyrir Breiðafjörð í heild og mikilvæg fyrir uppbyggingu þar í framtíðinni, bæði í ferðaþjónustu og líka við öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni.