152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:32]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Ég get kannski ekki annað sagt varðandi tímarammann en að ég bara vona að hann verði sem skemmstur og það verði brugðist snarpt og hratt við. Það er mikilvægt að ný ferja, búin þeim eiginleikum sem við ræddum hér, verði sem fyrst til reiðu á svæðinu. Við þurfum líka að tryggja að þessi samgöngumáti sé þannig að fólk vilji nýta sér hann. Þá komum við líka að því að ferjusiglingar og þessar almenningssamgöngur, svo mikilvægar sem þær eru, mega ekki vera of dýrar heldur þurfum við að gæta að því að halda niðri kostnaði, hleypa honum ekki upp og ríkið þarf náttúrlega að leggja áherslu á að styðja við almenningssamgöngur af þessu tagi og halda þannig niðri kostnaði, til að mynda má nefna álögur og slíkt á ferjur og svona skip sem gegna svo veigamiklu hlutverki, það sé jafnvel horft til þess að halda þeim niðri eða fella niður. Og nú tala ég svo sem án ábyrgðar með það en mér finnst það vera áhugaverð hugmynd að velta fyrir sér að ganga lengra í því og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon hefur einmitt lagt fram tillögu um þau efni varðandi virðisaukaskatt á ferjur og skip. Það finnst mér vera atriði til að skoða líka því að við viljum að almenningssamgöngur séu bæði aðgengilegar og líka þannig að fólk geti auðveldlega nýtt sér þær fjárhagslega.