kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.
Virðulegi forseti. Undanfarinn klukkutími hér í þinginu hefur verið svolítið samgönguklukkutími, við höfum verið að tala um samgöngur og við ræddum hér áðan um Sundabraut, brú, göng. Við erum kannski það heppin að Breiðafjörðurinn er friðaður og þar af leiðandi detta tveir af þeim þremur möguleikum út. Sum okkar eru orðin nógu miðaldra til að muna eftir því að hafa farið með Akraborginni frá Akranesi til Reykjavíkur. En það er mikilvægt að við séum öll að hugsa um samgöngur hvar sem er á landinu. Hér er verið að tala um Breiðafjarðarferju og hv. þm. Bjarni Jónsson er með á tillögunni enda er þetta í kjördæmi hv. þingmanns, en það má ekki vera bara þannig. Það má ekki vera þannig að við séum bara að pota hlutum áfram kjördæmisins vegna. Það þarf að vera vegna þess að við viljum laga samgöngur alls staðar. Það er víða pottur brotinn í samgöngum og, eins og ég ræddi um hér í ræðu minni fyrr í dag, við þurfum að vinna saman að því að laga þá hluti. Við þurfum að vinna saman í því að tryggja það að þegar við lögum þessa hluti þá séum við líka að hugsa um orkuskipti og annað þannig að umhverfið fái að njóta góðs af. Það er ekki gott ef allir flutningabílarnir þurfa að keyra ofan af Vestfjörðum alla leiðina meðfram Breiðafirðinum vegna þess að það er mikill útblástur af því. Rafmagnsferja gæti hjálpað til við að stytta leiðina eða minnka slíka hluti. Við getum rifist um ýmislegt en við vitum að það er mjög mikilvægt að setja upp þessar samgönguleiðir, ekki bara til þess að fólkið á svæðinu njóti góðs af og ekki bara til þess að ferðamenn geti á auðveldari hátt séð þá náttúruperlu sem t.d. Breiðafjörður er og Vestfirðir, heldur skapar þetta líka tækifæri. Þetta skapar tækifæri til þess að það þróist upp atvinna annars staðar en bara hér á suðvesturhorninu, atvinna sem síðan skapar tekjur til baka inn í þjóðarbúið vegna þess að nýsköpun gerist ekki bara hér í Reykjavík. Gott dæmi um það er einmitt á Vestfjörðum þar sem við höfum eitt flottasta nýsköpunarfyrirtæki landsins sem nýlega var metið á í kringum 90 milljarða kr., Kerecis. Þetta er allt frá Ísafirði. Þetta kom sem nýsköpun til að nýta sjávarafurðir okkar á nýjan og góðan hátt og gera frábæra hluti á heimsvísu. Það var á Vestfjörðum, ekki í Reykjavík. Með því að byggja upp samfélag þar sem fólk getur búið hvar sem er, hefur tryggar og góðar samgöngur, hefur möguleikann á því að starfa og hefur möguleikann á því að sækja sér þjónustu — allt skiptir þetta máli til að tryggja að við getum verið með nýsköpun og atvinnuuppbyggingu hvar sem er. Ég tel mjög mikilvægt að við horfum á Breiðafjörðinn. Hvernig getum við gert þetta á umhverfisvænan hátt? Hvernig getum við tryggt samgöngur þar en líka farið í alla hina hluta landsins þar sem samgöngur eru enn í lamasessi og finna leiðir? Og að sjálfsögðu er það þannig að ef samgönguáætlanir eru alltaf til tíu eða 20 ára og fólk segir: Ég fæ kannski jarðgöng hérna þegar ég er orðinn 75 ára, þá örvæntir fólk og flytur kannski í burtu. Við þurfum að finna leiðir. Vinir okkar Norðmenn, sem hv. þingmaður nefndi hér áðan, hafa t.d. búið til leiðir til að fjármagna þessi göng sem þeir hafa verið að byggja. Þú borgar fyrir að fara í hver einustu göng. Kannski er það aðferðin, kannski er það ekki aðferðin. Þetta þurfum við að taka og ræða og ekki bara henda eggjum hvert í annað þegar við erum að ræða þetta heldur setjast niður og vinna úr þessu saman. Ég fagna því heils hugar þessari tillögu frá flutningsmönnunum og eins og hv. þm. Orri Páll Jóhannsson sagði þurfum við einmitt að segja að þetta eigi að vera endurnýjanleg orka. Það er eitthvað sem hægt er að fela hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Vonandi fáum við bara öll sem fyrst að sigla í nýjum Baldri um Breiðafjörð og njóta þeirrar náttúruperlu.