152. löggjafarþing — 40. fundur,  23. feb. 2022.

kaup á nýrri Breiðafjarðarferju.

46. mál
[19:41]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmönnum fyrir góðar umræður í þessu máli og það er gott að vita af þessum fína stuðningi sem hefur komið við málið í umræðunum, þar á meðal frá stjórnarþingmönnum. Ég er mjög ánægður með að tveir stjórnarþingmenn séu meðflutningsmenn á þessu máli, hv. þm. Ásmundur Friðriksson frá Vestmannaeyjum, þingmaður Suðurkjördæmis, og hv. þm. Bjarni Jónsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, sem tók hér til máls og flutti mjög góða ræðu. Þetta varðar að sjálfsögðu landið í heild, hagsmuni landsins í heild, og það er gott að heyra að þingmaður úr Suðvesturkjördæmi taki til máls og lýsi yfir stuðningi við málið. Þannig á það að vera. Þetta er ekki eitthvert sérhagsmunamál svæðisins eða kjördæmisins á nokkurn hátt heldur landsins í heild. Það er reyndar þannig að þingmenn Norðvesturkjördæmis búa að ákveðinni staðþekkingu á svæðinu og eru í góðu sambandi við kjósendur og það var þannig sem þetta mál varð til. Eins og ég sagði í ræðu minni þá hef ég notað ferjuna árum saman, alveg síðan ég var krakki. Ég man að í gamla daga voru bílarnir hífðir upp í gamla Baldur og svo niður í lestina, það var gamall fiskibátur. Ég man ekki eftir því, alla vega held ég að það hafi aldrei verið keypt ný Baldursferja. Ég þori ekki að fullyrða það, en ég man ekki eftir að ný ferja hafi verið keypt. Það er gríðarlega mikilvægt að um umhverfisvæna ferju sé að ræða og stuðningur við það sem hefur komið fram í umræðunni hér er mjög góður. Vissulega má breyta því með breytingartillögu í nefndinni og það verði ákveðið að ferjan verði knúin með endurnýjanlegum orkugjafa. Það kemur vel til greina. Það er einnig mikilvægt að hún sé hagkvæm í rekstri þannig að ekki verið of dýrt fyrir almenning að nota hana, þetta verður að vera ódýrt fyrir almenning. Það þarf að vera alvöruvalkostur fyrir Vestfirðinga að geta valið á milli þess að aka suður, vonandi á bundnu slitlagi, alla norðurströnd Breiðafjarðar eða taka ferjuna. Með Dýrafjarðargöngum og samgöngubótum á Dynjandisheiði er ljóst að Ísfirðingar, Bolvíkingar og íbúar við Djúp munu fara þessa leið suður, fara Dynjandisheiðina, og þá er mikilvægt að geta valið á milli þessara samgöngukosta, ferju eða að aka alla leið. Ný ferja myndi opna aðgang að Breiðafirði enn meira.

Síðast var keypt ódýrari ferja. Það fannst dýrari ferja en það var keypt ódýrari ferja. Það er því gríðarlega mikilvægt í þessu máli og líka í ljósi sögunnar að Alþingi lýsi vilja sínum með þingsályktun varðandi kaup á þeirri ferju sem fyrirhuguð er, að hún standist nútímakröfur um öryggi og nútímaþægindi og að kannaðir verði möguleikar á því að hún verði knúin með endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er gott veganesti fyrir Vegagerðina þegar þeir fara að kaupa ferju og fyrir ráðherrann, það er búið að fela honum að kaupa nýja ferju sem verði í reglulegum ferjusiglingum á Breiðafirði. Þess vegna er þetta mál leyst svona af því að síðast var besti kosturinn ekki valinn. Það er gríðarlega mikilvægt núna, líka í ljósi þess hve ferðaþjónustan er orðin mikilvæg; einnig vegna þungaflutninga en sérstaklega vegna ferðaþjónustunnar. Það eru gríðarleg tækifæri á Vestfjörðum, eins og áður hefur komið fram, og þetta yrði mikill og öflugur þáttur í því að auka þau enn frekar. Ég tel að það væri mjög þess virði og alveg frábært að fyrir 100 ára afmælið 2024 verði keypt ný ferja. Þá getum við einnig minnst þess að árið 1924 keypti Guðmundur Jón Jónsson á Narfeyri gamlan bát til að sigla með fólk og vörur á Breiðafirði og að nú munum við kaupa nýja og nútímalega ferju til að sinna sömu siglingum.