tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að að loknum óundirbúnum fyrirspurnum er gert ráð fyrir að tekið verði til umræðu 4. mál á dagskrá, fiskveiðistjórn, eftirlit Fiskistofu o.fl., frumvarp matvælaráðherra. Atkvæðagreiðslur um 2. og 3. dagskrármálið, fjárstuðningur til minni rekstraraðila og viðspyrnustyrkir, verði upp úr kl. 13.30.
Forseti vill jafnframt geta þess að um kl. 13 er gert ráð fyrir að forsætisráðherra flytji þinginu stutta skýrslu, samkvæmt 61. gr. þingskapa, og að lokinni yfirlýsingu forsætisráðherra munu formenn annarra stjórnmálaflokka eða staðgenglar þeirra hafa tækifæri til þess að tjá sig um yfirlýsinguna.