málefni fólks á flótta.
Virðulegur forseti. Tíðindi næturinnar frá Úkraínu fylla mann skelfingu. Alþjóðalög brotin, öryggi Evrópu ógnað með innrás Rússa og almennir borgarar liggja í valnum. Íslenskum stjórnvöldum ber að bregðast við og var gott að heyra fulltrúa stjórnvalda fordæma árásirnar afdráttarlaust í morgunsárið.
Ég vil eiga orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra um málefni fólks á flótta því að nú þurfum við að tefla því fram sem við höfum yfir að ráða; mannúð og vernd. Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2014 sinnt talsmannaþjónustu fyrir fólk í leit að vernd, en ekki í eigin þágu eða eigin fjárhagslegra hagsmuna heldur af mannúðarsjónarmiðum sem einkenna störf Rauða krossins á alþjóðavísu.
Nú hefur hæstv. dómsmálaráðherra án fyrirvara tekið ákvörðun um að endurnýja ekki þjónustusamning við Rauða krossinn. Fyrir liggur að málsmeðferðartími hefur styst eftir að Rauði krossinn tók við verkefninu, en það hefur einmitt verið aðalmarkmið stjórnvalda í málaflokknum. Hjá Rauða krossinum hefur myndast mikil þekking og góð yfirsýn sem hefur gagnast íslenskum stjórnvöldum. Fyrir liggur að 750 einstaklingar í leit að vernd eru nú í þjónustu hjá Rauða krossinum og enginn samningur í gildi frá 30. apríl næstkomandi. Ríkisstjórn sem talar stöðugt um skilvirkni og mun minna um mildi og mannúð ætlar nú að setja málaflokkinn í algjört uppnám, enda fáir lögmenn sem hafa viðlíka þekkingu og þeir lögfræðingar sem alfarið hafa helgað sig málaflokknum síðustu ár.
Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra í tilefni tíðinda næturinnar: Er hann reiðubúinn að taka Úkraínu þegar í stað af lista yfir svokölluð örugg ríki? Mun hann vera tilbúinn til þess að liðka fyrir komu úkraínsks almennings á flótta hingað til lands? Getum við séð fyrir okkur að ríkisstjórnin stígi fram með það sem við höfum yfir að ráða, sem er ekki hervald heldur mannúð og skjól?