málefni fólks á flótta.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt, við höfum ákveðið það í dómsmálaráðuneytinu að endurnýja ekki samning þann sem hefur verið í gildi við Rauða krossinn á Íslandi um að þjónusta þá sem leita hér verndar. Samningurinn hefur tekið til bæði félagsþjónustu og talsmannaþjónustu. Þær breytingar urðu um áramót að félagsþjónustan færist yfir í annað ráðuneyti og samningurinn rann út fyrir rúmu ári, var framlengdur til eins árs og var byggður á útboði á sínum tíma. Við þessi tímamót þar sem hlutverk ráðuneytis tekur miklum breytingum er ástæða til að endurskoða það hvernig staðið verður að þessum málum. Það er auðvitað ranglega sagt hér að eitthvert uppnám sé í þessum málaflokki. Við munum væntanlega tilkynna það í þessari viku, eða í næstu viku í síðasta lagi, hvernig staðið verður að þessum málum í framtíðinni. Við munum tryggja að sú lögbundna þjónusta sem ráðuneytið á að veita verði til staðar og það verði ekkert rof á henni gagnvart þeim sem hingað koma.
Málsmeðferðartími hefur styst, sagði hv. þingmaður. Það er alveg rétt. Það er fyrst og fremst út af breyttum vinnureglum ráðuneytisins við vinnslu umsókna um ríkisborgararétt á Íslandi. Þess vegna meðal annars hefur málsmeðferðartími styst.
Viljum við taka Úkraínu af lista yfir örugg ríki? Ja, það hlýtur að verða til endurskoðunar núna. Það er alveg rétt að mannúð og skjól á að vera aðalsmerki okkar. Við þurfum að axla okkar skyldur í þeim efnum eins og önnur ríki í Evrópu og víðar um heim. Nú blasir við okkur ný sviðsmynd, ný hætta og við hljótum að taka þátt í því, einmitt undir formerkjum mannúðar og skjóls sem Ísland getur veitt. En við þurfum alltaf að hafa það sem forgrunn, í þeim verkefnum sem við tökum að okkur, að við ráðum við þau með sómasamlegum hætti þannig að þeir sem hingað koma og við tökum undir okkar verndarvæng (Forseti hringir.) fái þá þjónustu sem við verðum að geta veitt til að þeir geti búið hér í okkar landi.