152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

málefni fólks á flótta.

[10:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Varðandi það að málsmeðferðartími hafi styst í málefnum fólks á flótta í leit að vernd hefur ekkert með umsóknir um ríkisborgararétt að gera. Ég held að við hljótum að kalla eftir því að ráðherra málaflokksins kynni sér ögn þá málaflokka sem undir hann heyra áður en hann kemur hingað í pontu með staðlausa stafi. Þetta tvennt, vinnsla á þessu tvennu, hefur engar tengingar.

Það er gott að heyra afdráttarlausa yfirlýsingu hæstv. dómsmálaráðherra um að Úkraína muni falla af lista yfir örugg ríki og vænti ég þess að sjá birtingu á heimasíðu ráðuneytisins strax í dag af því að annars getum við ekki tekið orð hæstv. ráðherra trúanleg. Þetta þarf að gerast strax í dag, hæstv. ráðherra. (Forseti hringir.) Úkraína er ekki öruggt ríki. Við sjáum það í heimsfréttum. Við sjáum það í innlendum fréttum. (Forseti hringir.) Við verðum að bregðast við núna og veita fólki skjól.