vextir og húsnæðisliður í vísitölunni.
Virðulegi forseti. Það sem vaxtahækkanir undanfarinna vikna hafa gert er að auka verulega á byrðar heimilanna, sem kemur að sjálfsögðu harðast niður á þeim sem verst standa því að þau hafa ekkert fjárhagslegt svigrúm til að bregðast við öllum þessum hækkunum. Enn fremur er þetta hrein og klár eignatilfærsla frá heimilunum til bankanna sem, svo að vægt sé til orða tekið, hafa ekkert við meira fé að gera. Þegar ofan á bætist verðbólga sem komin er hátt í 6% og fer vaxandi, þrátt fyrir fyrirheit fjármálaráðherra um að það myndi ekki gerast, er ekki von á góðu. Enn hefur ekki verið farið í neinar aðgerðir til að verja heimilin fyrir því sem fram undan er. Aðgerðirnar sem þyrfti að ráðast í eru hvorki margar né flóknar. Ríkisstjórnin þarf í aðalatriðum að ráðast í þrennar aðgerðir: Hún þarf að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni, krefja bankana um að sýna samfélagslega ábyrgð og frysta verðtryggingu á lánum og leigu í a.m.k. eitt ár.
Förum aðeins nánar yfir ástæður og áhrif þessara einföldu aðgerða. Að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni. Verðbólgan er 5,7%, en án húsnæðisliðar væri hún 3,7%. Með þessari einföldu aðgerð væri slegið á verðbólguna og hennar keðjuverkandi áhrif eins og hækkandi leiguverð og vexti. Að krefja bankana um að sýna samfélagslega ábyrgð og lækka vexti og álögur á viðskiptavini ásamt því að lækka arðsemiskröfur. Að frysta verðtryggingu á lánum og leigu allt þetta ár. Það er eðlileg krafa að bæði bankar og leigusalar séu ekki einir undanþegnir tekjufalli vegna afleiðinga heimsfaraldurs og óeðlilegt að þeir hagnist á ástandinu. Heimilin, sérstaklega á leigumarkaði, standa ekki undir þessum hækkunum. Þetta er það allra minnsta sem hægt er að gera til að verja heimilin sem verst standa. Bara þessar einföldu ráðstafanir myndu milda höggið og erfiðleika heimilanna og þannig líka liðka fyrir kjaraviðræðum sem verða nógu erfiðar samt.
Formaður Framsóknarflokksins, hæstv. innviðaráðherra, hefur nýverið talað fyrir því að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni. Tekur fjármálaráðherra undir það með honum? Hvenær er þá að vænta aðgerða? Eru einhverjar aðgerðir í undirbúningi sem munu verja heimilin fyrir afleiðingum Covid-19?