152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

vextir og húsnæðisliður í vísitölunni.

[10:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni hvað það snertir að verðbólgan er ógn við lífskjör, sérstaklega tekjulægsta fólksins. Það er okkar reynsla og okkar saga segir okkur að við þurfum sérstaklega að huga að þeim sem hafa minnst á milli handanna þegar verðbólga birtist okkur eins og hefur verið að gerast að undanförnu. Þess vegna skiptir svo miklu máli að það sem við erum að gera hér og það sem Seðlabankinn ákveður að gera með sínum stjórntækjum tali saman og það eigi sömuleiðis einhvern samhljóm með því sem gerist á vinnumarkaðnum.

Ég vil samt sem áður halda því til haga í þessu samhengi að staða heimilanna hefur aldrei verið sterkari. Það er grunnurinn sem við stöndum á þegar nú sést vaxandi verðbólga. Ef litið er til launavísitölunnar þá hækkaði hún um 7,5% í fyrra. Launakostnaður á framleidda einingu er talinn hækka um 7% á þessu ári. Þetta þýðir meira á milli handanna hjá venjulegu fólki sem er að vinna. Og þegar sagt er að fjármunir hafi færst til bankakerfisins frá heimilunum þá verðum við að skoða báðar hliðar efnahagsreiknings heimilanna. Það er alveg rétt að verðbólga hækkar verðtryggð lán. En hvað hafa eignirnar á bak við hækkað? Þær hafa hækkað u.þ.b. helmingi meira en skuldirnar. Ég heyri oft talað hér um að skuldir heimilanna hafi vaxið um 500 milljarða en eignirnar hafa vaxið um 1.000 milljarða. Við skulum ekki á þessum tímapunkti gera of mikið úr þeim almenna vanda sem mér fannst hv. þingmaður láta skína í, að heimilin séu komin á heljarþröm eða þar séu slík vandamál uppi að slá þurfi af allar afborganir og allar leigugreiðslur út allt þetta ár. Með þessu er verið að gera allt of mikið úr vandanum. Það sem við þurfum að gera er að fylgjast vel með þeim sem standa veikum fæti fyrir. Fjármálakerfið er í mjög góðum færum til þess að bregðast við og ég trúi ekki öðru en að það verði einmitt gert.