fyrirhuguð rafvopnavæðing lögreglunnar.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt að umhverfi það sem lögreglan býr við, til að gæta öryggis borgaranna og verja sjálfa sig, hefur breyst mikið á undanförnum árum. Við sjáum að útköllum hjá sérsveit lögreglumanna, þar sem vopn koma við sögu, hefur á skömmum tíma fjölgað um tugi prósenta og við því verður að bregðast með einhverjum hætti. Ég hef fengið um það skilaboð, m.a. frá lögreglunni, og fram undan eru fundir með Landssambandi lögreglumanna ásamt lögreglustjórum og fleiri aðilum þar sem ég mun fara yfir þessi mál og meta þau. Það er alveg rétt og ég hef líka tekið eftir því að fulltrúi Amnesty International á Íslandi hefur stigið fram og varað við þessu og það eru fleiri sem gera það og það eru auðvitað sjónarmið sem verður að skoða og taka tillit til.
Hitt er svo annað mál að tölfræðina í kringum þetta þarf að skoða í breiðu samhengi. Þegar talað er um slys og óhöpp sem verða t.d. við notkun rafbyssa verður að bera það saman við slys og óhöpp sem eiga sér stað við aðra valdbeitingu lögreglu gagnvart þeim sem við er að eiga. Tölur sem ég hef séð, m.a. í skýrslum frá löndum í Evrópu sem hafa heimilað notkun á rafbyssum, sýna fram á að það er tugprósenta minnkun á líkamstjóni, bæði hjá lögreglumönnum og hjá þeim sem lögreglan er að eiga við á hverjum tíma, við notkun rafbyssa miðað við það að beita öðrum úrræðum eins og kylfum. Það er augljóst mál og blasir við öllum að átök leiða til líkamstjóna, slagsmál, sem verða þegar lögreglan þarf að beita valdi, og beita þar með kylfum, geta leitt til líkamstjóna. Það er tölfræði sem sýnir fram á þetta og ég hef ekki séð frá Amnesty tölfræði um það hver munurinn er t.d. á þessu tvennu. Þetta mun ég skoða og leggja m.a. til grundvallar þegar ákvörðun verður tekin í þessu máli.