staða sveitarfélaganna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og tækifærið til að ræða þetta og tek undir með honum að kjördæmavika er mjög skemmtileg. Ég komst því miður ekki þessa viku vegna Covid-veikinda en þekki það af eigin reynslu að þetta eru mjög upplýsandi ferðir og við fáum einmitt gríðarlega miklar upplýsingar í þessum samanburði á milli sveitarfélaga, t.d. í okkar stóra kjördæmi, Suðurkjördæmi, eins og öðrum kjördæmum á Íslandi.
Það er mjög sérkennilegt að setja þetta mál upp þannig að einhver ríkisstjórn á einum tíma eigi að leysa allan vanda sveitarfélaga og vitna m.a. til samkomulags sem var gert fyrir 25 árum um yfirfærslu grunnskólans og halda því fram, sem einstaka sveitarfélög hafa verið að gera upp á síðkastið, að þar sé enn óleyst vandamál, 25 árum síðar, sem ríkið eigi ganga inn í. Sveitarfélögin í þessu landi eru með sjálfstæða tekjustofna, ólíkt t.d. mörgum sveitarfélögum á Norðurlöndum þar sem gerður er samningur árlega um þann kostnað sem sveitarfélögin standa frammi fyrir. Við þekkjum það líka hér í þinginu að mörg mál, sérstaklega þegar þau koma frá þingmönnum, eru ekkert sérstaklega kostnaðarmetin, sérstaklega ekki ef þau falla á sveitarfélögin. Þannig hafa oft og tíðum alls konar viðbótarkvaðir fallið á sveitarfélögin í gegnum tíðina. Við erum hins vegar með samstarfsverkefni um það í tekjustofnanefnd. Við erum núna með verkefni þar sem við erum akkúrat að ræða þessi mál vegna þingsályktunarinnar um eflingu sveitarstjórnarstigsins á milli ríkisins og sveitarfélaganna. Ég veit eftir fund í gær að þar ber mjög mikið í milli. Það eru sveitarstjórnarkosningar í vor þannig að ég veit svo sem ekki hvort við náum samkomulagi um þetta. En ef við ætlum að henda öllu inn og segja að einhver ríkisstjórn eigi bara að finna út úr þessu þá þurfum við að byrja á því að spyrja: (Forseti hringir.) Vilja sveitarfélögin áfram hafa sjálfstæða tekjustofna eða viljum við fara hina norrænu leið (Forseti hringir.) þar sem gerðir eru samningar um kostnaðinn sem sveitarfélögin þurfa að bera?