staða sveitarfélaganna.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta innlegg. Það var svo sem viðbúið að hann hengdi sig á grunnskólann, sem er auðvitað á borði sveitarfélaganna. En myndin er breytt. Skóli án aðgreiningar var ekki til staðar þegar tilfærslan átti sér stað. Vinnutímastytting var ekki til staðar. Fækkun barna í bekk var ekki til staðar. Þannig að það er greinilegt að það vantar þarna fjármuni. En af því að við erum að tala um verkefni ríkis og sveitarfélaga þá langar mig að nefna heilsugæsluna, sem er jú ekki á forræði sveitarfélaga heldur á forræði ríkisins. Á Suðurnesjum búa íbúar við það að u.þ.b. 4.000 manns keyra Reykjanesbrautina daglega. Telur ráðherra það eðlilegt að eldri borgarar á Suðurnesjum séu að fara í færð eins og þessari til að leita læknisþjónustu í Reykjavík?