152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

staða sveitarfélaganna.

[11:00]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Bara svo að við klárum aðeins umræðuna. Ef við ætlum að ræða hér um tekjuskiptingu og verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga eigum við að hætta að rífast um eitthvað sem gerðist fyrir 25 árum. Við eigum bara að viðurkenna að á 25 árum hefur augljóslega ýmislegt þróast, en þar með líka hinir sjálfstæðu tekjustofnar sveitarfélaganna með þeim hagvexti og útsvarshækkunum sem þar hafa orðið, að ég tali nú ekki um fasteignagjöld. Við skulum hætta að vera að rífast um eitthvað sem gerðist fyrir 25 árum og ætlast til þess að það verði einhver ríkisstjórn á þessum tíma sem eigi að redda því. Það eru 25 ár síðan, hv. þingmaður. Síðan erum við með önnur verkefni sem er nýlega búið að semja um, og það er svolítið skrýtið að það skuli alltaf gerast þannig að sveitarfélögin komi eftir nokkur ár, eftir að þau hafa samið um verkefnaflutning, og segi: Heyrðu, það klikkaði eitthvað. Þetta var umræðan um grunnskólann á sínum tíma, ég hélt hún væri búin. Núna er það umræðan um málefni fatlaðs fólks.

Við þurfum að finna betra jafnvægi á milli þeirra nýju áherslna, nýju laga, nýs kostnaðarauka sem þingið leggur á sveitarfélögin og reikna það inn í tekjumódelið. (Forseti hringir.) Ég er sammála því. Það er það sem vantar. Ég tek síðan að sjálfsögðu undir það að við þurfum að efla heilsugæsluna á Suðurnesjum, engin spurning um það.