152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

innrás Rússa í Úkraínu.

[11:02]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Herra forseti. Í dag er sorgardagur í Evrópu. Hafið er stríð í Evrópu í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Það verður með afleiðingum sem við vitum ekki hverjar verða. Viðbrögð vestrænna ríkja þurfa að vera afdráttarlaus og hörð og í þeim viðbrögðum skiptir máli að Ísland skorist ekki undan ábyrgð og að við nýtum öll okkar tengsl og áhrif til þess að stilla til friðar. Aðalatriðið næstu sólarhringa er að þjóðir heims geri allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva þessa innrás Rússa og það er nauðsynlegt að bandamenn okkar og við séum enn skýrari gagnvart Rússlandi.

Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvaða viðbrögð alþjóðasamfélagsins hún telur nægilega sterk til þess að hafa áhrif á þessa stöðu. Hversu langt telur hæstv. ráðherra að Evrópusambandið og vestræn ríki séu reiðubúin að ganga þegar kemur að efnahagsþvingunum? Það verður að segjast eins og er að eins og staðan er núna þá virðist Pútín ekki kippa sér mikið upp við þessar efnahagsþvinganir og þá er spurningin hvort við höfum eitthvað uppi í erminni. Til hvaða aðgerða telur hæstv. ráðherra að Evrópusambandið og NATO þurfi að grípa?