152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

innrás Rússa í Úkraínu.

[11:07]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég tek undir orð hennar og ég efa ekki að hugur okkar er með þeirri þjóð sem nú hefur verið ráðist á með ólögmætum hætti. Mig langar í framhaldi af þessu að spyrja hvort hæstv. ráðherra getur lagt mat á það hvernig og hvort hernaðarlegt mikilvægi Íslands muni aukast í kjölfar þessara atburða á næstu vikum.