152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

skaðabótalög.

68. mál
[11:28]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skaðabótalögum, nr. 50/1993, með síðari breytingum, um gjafsókn. Auk mín eru flutningsmenn þessa frumvarps Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.

1. gr. frumvarpsins hljóðar svo:

„Á eftir 27. gr. laganna kemur ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi: Gjafsókn.

Gjafsókn skal veitt þeim sem höfðar mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns eða til að krefjast greiðslu skaðabóta vegna líkamstjóns þrátt fyrir að skilyrðum 1. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála sé ekki fullnægt, enda hafi heildartekjur viðkomandi verið undir meðaltali heildartekna á næstliðnu almanaksári samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fer að öðru leyti um gjafsókn samkvæmt almennum reglum.“

2. gr. hljóðar svo: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Frumvarp þetta var lagt fram á 151. löggjafarþingi (96. mál) en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt. Efni þessa frumvarps er að finna í frumvarpi sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi (430. mál) en hlaut ekki afgreiðslu.

Það er einstaklingum oft þung byrði að höfða dómsmál vegna líkamstjóns sem þeir hafa orðið fyrir. Þeir fallast því gjarnan frekar á þær bætur sem tryggingafélög bjóða að fyrra bragði og gefa eftir þann rétt sem þeir þó telja sig eiga. Til þess að stemma stigu við þessu vandamáli sem snýr að tekjulægri einstaklingum og þar með bæta réttaröryggi þeirra sem hafa orðið fyrir líkamstjóni er lagt til að þeir eigi kost á því að höfða mál til viðurkenningar á skaðabótaskyldu eða greiðslu skaðabóta sem rekja má til líkamstjóns með því að rýmka rétt þeirra til gjafsóknar.

Það er grafalvarlegt mál þegar fólk lendir í líkamstjóni og missir heilsuna. Það hefur ekki bara áhrif á viðkomandi einstakling heldur alla fjölskyldu hans. Það er óþolandi í réttarríki og í ríki þar sem við teljum okkur fara eftir siðareglum að við skulum ekki vera búin að tryggja það að þeir sem verst settir eru í okkar þjóðfélagi geti leitað réttar síns fyrir dómstólum vegna kostnaðar. Það segir sig sjálft að þegar einstaklingur sem lendir í umferðarslysi þarf að leita réttar síns til að reyna að ná bótum frá viðkomandi tryggingafélagi þá er hann ekki í sömu stöðu og viðkomandi tryggingafélag sem hefur gífurlegt fjármagn og fjölda lögfræðinga. Einstaklingurinn þarf jú að leita sér lögfræðilegrar aðstoðar en það er því miður takmarkað við þá lögfræðinga sem vilja virkilega fara með mál fyrir dóm til að ná réttum og fullum bótum fyrir viðkomandi líkamstjón.

Það segir sig sjálft að í þessum slag er mjög ójöfn staða og því verðum við að sjá til þess og tryggja það að viðkomandi fái gjafsókn vegna þess að ef hann fær gjafsókn og vinnur síðan málið skilar gjafsóknin sér aftur til baka í ríkissjóð. Þannig að í sjálfu sér er ekki verið að tefla á mjög mikla hættu. Því miður hefur verið lenska og hefur sýnt sig í mörgum málum að einstaklingar hafa sæst á mun lægri bætur en þeir eiga rétt á, bæði til þess að klára málin og líka vegna ótta og þeirrar stöðu sem viðkomandi er kominn í þegar hann er kannski búinn að vera frá vinnu vegna líkamstjóns í langan tíma og farið að kreppa virkilega að í fjárhag fjölskyldunnar.

Svona staða er ólíðandi og við verðum líka að átta okkur á því að við erum að borga einna hæstar tryggingar í Evrópu. Það setur líka annað samasemmerki við það að tryggingafélögin verða við hvert tjón að leggja ákveðna fjárhæð inn í svokallaðan bótasjóð eða tryggingarskuld til að mæta þeim kostnaði sem er reiknað með að viðkomandi tjón geti valdið síðar í ferlinu. Upp getur komið sú staða, og hefur gerst mjög oft, að samið er um einhverja ákveðna hluti sem síðan kemur í ljós að eru langt frá því að bæta það tjón sem viðkomandi varð fyrir. Þá situr viðkomandi eftir með ónýta heilsu, fjárhagurinn er í rúst og er ávísun á það að viðkomandi er jafnvel á örorku og þar af leiðandi kominn í fátækt og á sér ekki á neinn hátt viðreisnar von gagnvart tryggingafélaginu vegna þess að þá er búið að ljúka málunum. Hann á engan eða fræðilega mjög lítinn rétt á að fá gjafsókn í þessum málum í dag vegna þess að gjafsóknarreglurnar eru svo strangar að varla einu sinni þeir sem eru á örorkubótum geta sloppið þar inn fyrir. Ég veit af eigin reynslu að það breytir engu hversu lágar tekjurnar eru. Þá eru notuð einhver önnur ráð til þess að neita viðkomandi um sinn rétt á gjafsókn sem segir manni að kerfið er þar af leiðandi að verja tryggingafélögin gagnvart tjónþolunum. Það gerir það að verkum að það er ekki bara tryggingafélagið sem er með öll völd og hefur fjármagnið og lögfræðinga heldur er ríkiskerfið með lögum að tryggja að tryggingafélögin hafi þennan rétt og er eiginlega að vernda það að þau hafi yfirburðastöðu gagnvart viðkomandi.

Þá hefur undanfarið skapast umræða um að mikilvægt sé að tryggja þolendum heimilisofbeldis og þolendum kynferðisofbeldis rétt til gjafsóknar svo að það sé ekki fjárhagslega íþyngjandi fyrir þolendur að leita réttar síns í einkamálum. Samþykkt frumvarps þessa myndi rýmka verulega skilyrði fyrir gjafsókn í slíkum tilvikum.

Þarna er líka stór pottur brotinn og þarna er einmitt það sem við þurfum og eigum að leggja áherslu á, að allir þeir sem verða fyrir heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi eða öðru líkamlegu tjóni eigi skýlausan rétt á að leita réttar síns og koma málum fyrir dómstóla. Meðan þeir geta það ekki er því miður í mörgum tilfellum sú staða að viðkomandi fær brotabrot af þeim bótum sem hann á rétt á. Við vitum það og höfum orðið vör við það núna í sérstaklega í Covid-faraldrinum að bæði heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi hefur stóraukist.

Því segi ég: Oft hefur verið nauðsyn en nú er brýn þörf á því að við tökum á þessum málum og komum þessum gjafsóknarmálum í lag. Það er mjög undarlegt og eiginlega stórfurðulegt að við skulum setja lög um réttindi þeirra sem verða fyrir heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi eða öðru líkamlegu tjóni, að þeir eigi rétt á bótum, en við tryggjum það ekki. Við eigum að tryggja að til þess að þeir fái þær bætur sem þeir eiga rétt á geti þeir leitað allra þeirra réttinda sem þeir eiga til að koma málum fyrir dómstóla og fengið nákvæmlega þá niðurstöðu sem þeir eiga rétt á. Eins og staðan er í dag er það svo langt því frá og þess vegna verðum við nauðsynlega að breyta þessu.

Eins og komið hefur fram hér á undan hef ég áður reynt að koma að þessum málum. Þetta er í þriðja skiptið sem ég reyni að koma þessu máli í gegn og það sýnir, held ég, svart á hvítu þau sjónarmið sem eru í gangi í hjá valdhöfum á hverjum tíma eins og núverandi ríkisstjórn og fyrri ríkisstjórn. Það sýnir að hún hefur ekki áhuga á að gefa þessum einstaklingum þennan rétt. Þá spyr maður sig: Hvers vegna? Hvers vegna erum við að gefa fólki rétt á að fá bætur vegna heimilisofbeldis, kynferðisofbeldis eða annars líkamstjóns en ætlum ekki að sjá til þess að það nái þeim rétti? Þá hlýtur eitthvert annað sjónarmið að vega þar á móti og ég sé ekki annað en að þar sé bara verið að taka afstöðu með tryggingafélögunum, með þeim sem beitir ofbeldi, hvort sem það er heimilisofbeldi eða kynferðisofbeldi, og það er grafalvarlegt mál, eða hreinlega verið að koma í veg fyrir að þessir einstaklingar beri ábyrgð á því tjóni sem þeir hafa valdið.

Í almennum reglum um gjafsókn samkvæmt lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, sbr. reglugerð nr. 45/2008 um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar, með síðari breytingum, eru sett ströng skilyrði um bága fjárhagsstöðu umsækjenda fyrir veitingu gjafsóknar, mjög ströng, eiginlega svo ströng að varla nokkur sleppur í gegn.

Með frumvarpi þessu er lagt til að gjafsókn skuli veitt, í þeim tegundum dómsmála sem um ræðir, að því skilyrði uppfylltu að heildartekjur umsækjanda á næstliðnu almanaksári hafi verið undir meðaltali heildartekna hér á landi það sama ár samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Þetta er mjög mikilvægt. Þarna förum við ekki hátt vegna þess að árið 2019 var meðaltal heildartekna samkvæmt útgefnum tölum Hagstofunnar 5.677.000 kr. Þannig nær hin nýja regla til þeirra sem hafa lágar tekjur, þótt þær séu hærri en núgildandi tekjuviðmið fyrrnefndrar reglugerðar.

Það eru ekki mjög háar tekjur sem við erum að tala um þarna og þar af leiðandi gefur þetta flestum og sérstaklega þeim sem eru í lægri tekjuþrepunum möguleika á því að ná fram gjafsókn og ná fram réttlæti ef á þarf að halda til að koma málum fyrir dómstóla.

Efni frumvarpsins samrýmist 3. mgr. 126. gr. laga um meðferð einkamála sem kveður á um að gjafsókn verði enn fremur veitt eftir því sem fyrir er mælt í öðrum lögum. Að frátöldum almennum skilyrðum fyrir gjafsókn skv. 1. mgr. 126. gr. fyrrnefndra laga gilda ákvæði XX. kafla sömu laga um veitingu gjafsóknar á grundvelli þess ákvæðis sem mælt er fyrir um í frumvarpi þessu.

Ég vona heitt og innilega að þetta frumvarp Flokks fólksins nái fram að ganga og ég vona að ríkisstjórnin sjái villu síns vegar í þessum málum og gangi í það að samþykkja þetta frumvarp og sjá til þess þar af leiðandi að þeir sem virkilega hafa orðið fyrir heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi, líkamlegu tjóni vegna umferðarslysa, vinnuslysa eða annarra slysa fái þann rétt algjörlega óskertan og fái metið nákvæmlega hvaða tjóni viðkomandi hefur orðið fyrir og fái það bætt eins og segir í lögunum. Við erum búin að búa til lög sem segja að viðkomandi eigi að fá líkamstjón sitt að fullu bætt en hann fær það ekki ef samið er um kannski einn þriðja, einn fimmta eða einn tíunda af bótunum og honum er stillt upp við vegg og sagt: Annaðhvort verður þú að taka það eða fá ekki neitt, vegna þess að hann hefur ekki tækifæri til að segja: Nei, ég vil fá fullar bætur, ég vil koma málinu fyrir dóm, ég ætla að sækja um gjafsókn. Viðkomandi veit í flestum tilfellum að það er mikil áhætta og hugsar þar af leiðandi með sér: Það er betra að fá einn þriðja, það er betra að fá einn fimmta og samþykkja það en að fá ekki neitt.

Þetta er ömurleg staða sem veikt fólk er sett í. Og gleymum ekki að á sama tíma eru oft heilu fjölskyldurnar undir, og börn, sem þetta varðar þannig að þarna er vegið að fjárhag viðkomandi fjölskyldu og verið að senda hana beint í sárafátækt í mörgum tilfellum. Það er ömurlegt að við skulum vera í okkar réttarríki með þannig lög að þau séu bara fyrir fólk sem getur varið sig fyrir dómstólum.