152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

yfirlýsing ráðherra sbr. 61. gr. þingskapa.

[13:03]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Í nótt raungerðist það sem við höfum óttast undanfarnar vikur. Við upplifum nú mestu ógn í Evrópu frá því í seinni heimsstyrjöld. NATO og Evrópusambandið standa frammi fyrir stærstu áskorun sinni og það sem mun ráða úrslitum er samstaða þessara ríkja, samstaða fullvalda lýðræðisríkja gegn valdabrölti og árásum Pútíns. Það er mikilvægt að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt innrás Rússa og tilkynnt að Ísland muni veita fjármuni til mannúðaraðstoðar. Við í Samfylkingunni styðjum afdráttarlausar yfirlýsingar íslenskra ráðamanna um fordæmingu á hernaðaraðgerðum og teljum við rétt að Ísland skipi sér eindregið í sveit með vestrænum þjóðum og að ráðamenn okkar tali hátt og skýrt á alþjóðavettvangi.

Það er því miður ljóst að viðbrögð vestrænna ríkja þurfa að vera harðari en þegar hefur verið kynnt. Það er greinilegt að þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í duga ekki. Það er líka nauðsynlegt að smáríki eins og Ísland sýni samstöðu með Úkraínu og að við beitum öllum tiltækum ráðum til að styðja við úkraínsku þjóðina. Líklegt má telja að saklausir borgarar streymi yfir landamæri Úkraínu og vil ég héðan úr ræðustóli Alþingis skora á íslensk stjórnvöld að taka Úkraínu þegar í stað af lista yfir örugg ríki og hefja undirbúning við móttöku flóttafólks hér heima á Íslandi. Við erum herlaus þjóð en við getum sýnt samstöðu og veitt skjól og það eigum við að gera. Það er okkar skylda sem þjóð í samfélagi þjóða.

Að lokum vil ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að hefja þessa umræðu í dag. Hún er mikilvæg og það er mikilvægt að hún eigi sér stað hér inni og að ráðherrar upplýsi þingheim um stöðuna og aðgerðir stjórnvalda.