152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

yfirlýsing ráðherra sbr. 61. gr. þingskapa.

[13:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Afstaða íslenskra stjórnvalda hefur verið skýr og hún er enn skýr. Við höfum fram til þessa stutt friðsamlegar viðræður vegna spennunnar sem hefur verið að myndast sérstaklega í austurhluta Úkraínu, en nú þegar landamærin hafa verið rofin og innrás hafin í fullvalda, frjálst lýðræðisríki þá sendum við líka skýr skilaboð um að hlutirnir hafi breyst. Við fordæmum tilefnislausa árás Rússlands á Úkraínu og hún er í okkar huga og okkar heimshluta alls skýrt brot á alþjóðalögum, á lögum sem við byggjum fullveldið okkar hreinlega á. Það er á svona stundum sem við skulum minnast þess hvers virði það er að fá viðurkenningu annarra þjóða á því að það beri að virða landamæri og fullveldi ríkja, að fólkið sjálft megi ráða til úrslita málum heima fyrir. Það finnst þetta greinilega ekki öllum. Traðkað er á öllum þessum grundvallaratriðum og það er þess vegna ekki annað hægt en að horfa dálítið til talsverðra umsvifa Rússa í hafinu í kringum Ísland, t.d. og í lofthelginni í allt öðru ljósi í dag. Skyndilega hefur það bara allt aðra þýðingu að kafbátar Rússa hafa verið hér á sveimi í íslenskri efnahagslögsögu og flugvélarnar rjúfa reglulega íslenska lofthelgi. Öllu þessu verðum við að velta fyrir okkur og spyrja okkur spurninga sem lúta að framtíðinni og í millitíðinni og núna strax í dag þurfum við að senda út alveg skýr skilaboð um að við ætlum að standa með þeim sem starfa með okkur í varnarbandalaginu, Atlantshafsbandalaginu, og bregðast við af hörku og í samræmi við árásargirndina sem okkur er sýnd.