152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

yfirlýsing ráðherra sbr. 61. gr. þingskapa.

[13:08]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta er grafalvarlegt mál og það er eiginlega ömurlegt til þess að hugsa að það skuli vera hafið stríð hér stutt frá okkar landi. Innrás Rússa í Úkraínu er brot á alþjóðalögum og virðist aðeins gert til að þjóna egói eins einræðisherra. Vesturlönd verða að grípa til refsiaðgerða gagnvart Rússum og veita Úkraínu viðeigandi stuðning. Við megum þakka fyrir það friðarástand sem ríkt hefur undanfarna áratugi. En sagan sýnir að slíkt er því miður undantekning. Alþjóðasamfélagið þarf að vinna hörðum höndum að því næstu daga og vikur að tryggja öryggi fólks í Úkraínu og þrýsta á stjórnvöld í Rússlandi til að láta af þessari ólöglegu innrás. Rússneski björninn hefur dregið fram vopnin. Á sínum tíma réðust nasistar inn í Rússland. Nú ætlar Pútín að feta í fótspor Hitlers og ráðast inn í Úkraínu. Rússar höfðu fullan rétt á að verja sig gagnvart nasistum og það hafði Úkraína líka. Núna hefur Úkraína fullan rétt á því að verjast gegn rússneska birninum. En hverjir eru það sem eru þarna undir og fara verst út úr þessu? Almenningur, fatlað fólk, eldra fólk. Samúð okkar er hjá þeim. Það er þess vegna sem við verðum að nota og tryggja öll ráð til að stöðva þetta stríð vegna þess að þetta er fólkið sem þarf að vernda en lendir alltaf á milli og getur ekki forðað sér. Við verðum að senda skýr skilaboð til Rússlands: Við munum aldrei líða það að Rússland geti sjálfkrafa með hervaldi sínu innlimað ríki. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)