yfirlýsing ráðherra sbr. 61. gr. þingskapa.
Virðulegur forseti. Valdasjúkur einræðisherra hefur hafið innrás í Úkraínu í kjölfar stigvaxandi stríðsæsings hans sjálfs undanfarin misseri. Hugur minn og þingflokks Pírata er hjá fólkinu í Úkraínu. Við tökum undir afdráttarlausa fordæmingu hæstv. forsætisráðherra á þessu óforsvaranlega og ólögmæta innrásarstríði sem nú er hafið. Rétt í þessu sat ég fund þingmanna Evrópuráðsþingsins og hlustaði á skelfilega frásögn úkraínskrar þingkonu og vinkonu minnar af ástandinu þar í landi. Hún sagði okkur af því að hersveitir hafa sölsað undir sig mikilvæga innviði eins og rafmagn og gas, ásamt því að sprengja og hertaka flugvelli og aðra hernaðarlega mikilvæga innviði. Hún lýsti því hvernig byssumenn og glæpagengi skjóta á almenna borgara sem eru að reyna að flýja úr borgum Úkraínu í öryggi sveitanna. Ákall hennar til okkar var skýrt: Við verðum að skapa vettvang fyrir friðarviðræður án tafar því að þetta stríð verður að stöðva strax. En hvað getum við gert til að skapa slíkan vettvang þegar stríðsviljinn er jafn ríkur og raun ber vitni? Þingflokkur Pírata telur að einstaklingsmiðaðar viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir séu líklegastar til að þvinga Rússa að samningaborðinu. Frystum bankareikninga, heftum ferðafrelsi og stöðvum athafnafrelsi æðstu ráðamanna í Rússlandi og ólígarkana sem fjármagna stríðsrekstur þeirra. Eins styðjum við að sjálfsögðu að Ísland taki þátt í öllum þeim þvingunar- og refsiaðgerðum sem bandamenn okkar ráðast í.
Ég vil þó koma með varnaðarorð að lokum. Þótt fyrirséð sé að viðvera herliða NATO muni aukast á íslensku yfirráðasvæði teljum við ekki rétt að Ísland verði viðkomustaður fyrir kjarnavopn eða staður þar sem kjarnavopn eru geymd. Við viljum því flýta þingmáli þess efnis frá þingflokki Vinstri grænna í gegnum þingið sem allra fyrst.
Við stöndum með friði og mannúð. Við stöndum með úkraínsku þjóðinni og við skorum á ríkisstjórnina að eiga frumkvæði að því að bjóða flóttafólk frá svæðinu velkomið til Íslands.