152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

yfirlýsing ráðherra sbr. 61. gr. þingskapa.

[13:14]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Óveðursský vofa yfir Evrópu. Innrás Rússa gagnvart frjálsri og fullvalda þjóð, Úkraínu, er mesta ógn við vestræn lýðræðisríki, við alla Evrópu, í langan tíma. Þetta er sorgardagur. Það rignir sprengjum yfir almenna borgara vestræns ríkis. Á okkur Íslendingum hvílir sú skylda, sama skylda og á öðrum vestrænum lýðræðisríkjum, að vera samstiga í afdráttarlausri fordæmingu. Það er á stundum sem þessum sem reynir á samstöðuna og ég fagna afdráttarlausri yfirlýsingu hæstv. forsætisráðherra og stjórnvalda allra, afstöðu sem þingflokkur Viðreisnar styður heils hugar. Það er slík skýr afstaða og aðgerðir í samræmi við það sem er liður í því að verja þau gildi sem hafa mesta þýðingu fyrir okkur, frelsi, mannréttindi og lýðræði.

Við sýnum samstöðu með fullvalda Evrópuþjóð sem sætir árásum vegna þróunar í lýðræðisátt. Við eigum að taka þátt í aðgerðum með Evrópusambandinu, með Atlantshafsbandalaginu, með vestrænum lýðræðisríkjum af fullum þunga. Alþjóðleg staða Íslands í breyttri heimsmynd er líka undir. Við þurfum, eins og aðrar minni þjóðir, að styrkja stöðu okkar í fjölþjóðasamfélaginu í ljósi nýrra ógna og breyttrar heimsmyndar. En verkefnið núna er hins vegar alger samstaða í viðbrögðum vestrænna lýðræðisríkja við árás Rússlands á frjálsa og fullvalda þjóð. Við munum standast það próf.

Herra forseti. Að lokum langar mig að nota tækifærið og hvetja ríkisstjórnina til að bregðast hratt og vel við fyrirséðri þörf á aðstoð við almenna borgara í Úkraínu og móttöku flóttafólks þaðan. Skyldur okkar og hagsmunir sem vestræns lýðræðisríkis liggja líka þar.