viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Þingflokkur Pírata styður þetta mál en hefur komið á framfæri í 2. umr. um málið og í nefndaráliti ásamt hv. þingmönnum Flokks fólksins og Samfylkingarinnar ávirðingum gagnvart því hversu seint þetta mál er fram komið. Sömuleiðis höfum við lagt til ýmsar breytingar á frumvarpinu til að tryggja að aðstoðin fari til aðila sem greiða laun samkvæmt kjarasamningum og virða réttindi vinnandi fólks og skila að lágmarki inn CFC-skýrslum sem skylda er að skila hafi viðkomandi fyrirtæki einhverjar eignir í skattaskjólum. Við vitum að meiri hlutinn hefur ekki viljað banna fyrirtækjum sem nota skattaskjól að þiggja ríkisaðstoð en okkur þykir mögulega lágmark og vonandi lágmark að ríkisstjórnin samþykki að verði fyrirtæki uppvís að því að hafa ekki skilað tilskildum skýrslum um aflandseignir sínar þá beri þeim að greiða þessa viðspyrnustyrki til baka. Ég hvet hv. þingmenn meiri hlutans til að íhuga þessa tillögu okkar og samþykkja hana þegar þar að kemur.