152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:34]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við getum vissulega alltaf gert betur en ég frábið mér málflutning þeirra sem rita undir minnihlutaálit efnahags- og viðskiptanefndar þar sem ýjað er að því að ríkisstjórnin ætli sér að fækka fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Við vitum öll hversu mikilvægt það er að tryggja fjölbreytta og gróskumikla ferðaþjónustu um allt land. Aðgerðirnar eru einmitt til þess fallnar að verja smærri fyrirtæki, verja störf vítt og breitt um landið og hefur það m.a. komið fram að ef ekki hefði komið til þessara aðgerða væru fjölmörg fyrirtæki búin að skella í lás nú þegar. Hér er búið að binda vel um alla hnúta og var þetta allt saman samið í samráði við Skattinn. Það er óskynsamlegt að breyta þeim skilyrðum sem unnið hefur verið eftir, ekki síst þegar það hefur enga efnislega þýðingu þar sem góður hugur dugir ekki. Markmiðið er að koma með sanngjarnt úrræði sem býr til jöfn tækifæri fyrir fyrirtæki í sambærilegri stöðu.