152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:35]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem fram kom í ræðu hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur hér áðan. Varðandi það sem kom fram í ræðunni á eftir henni þá hvet ég eindregið þingmenn Framsóknarflokksins til að styðja atvinnulífið og greiða atkvæði með tillögu okkar um að tekjufallsviðmiðið verði lækkað úr 40% niður í 30% eins og talsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu hafa kallað eftir. Við höfum lagt fram breytingartillögur sem við munum greiða atkvæði um á eftir sem miða annars vegar að því að styðja betur og styðja við fleiri fyrirtæki sem hafa orðið fyrir gríðarlegum tekjusamdrætti í heimsfaraldrinum. Breytingartillögur okkar miða annars vegar að þessu og hins vegar að því, eins og fram kom í máli hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur áðan, að tryggja að stuðningurinn skili sér fyrst og fremst til fyrirtækja sem virða lög og reglur.