152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Flokkur fólksins styður þessa viðspyrnustyrki og mjög flott að við séum að styrkja þau fyrirtæki sem hafa farið illa út úr Covid. En það eru aðrir sem hafa líka farið illa út úr Covid. Almannatryggingaþegar hafa farið mjög illa út úr Covid og þar eru styrkir sem hafa ekki hækkað áratugum saman og ég vona að það verði næsta skref að hækka þá styrki, og einnig að það verði tekin stór skref í að styrkja geðheilbrigðiskerfið og sjúkratryggingakerfið þannig að þeir sem hafa farið illa út úr Covid fái þar líka þann stuðning sem þeir eiga rétt á.