viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Mig langar til að taka undir með hv. varaformanni efnahags- og viðskiptanefndar og mátti til með að koma hingað upp vegna orða sem hér voru látin falla áðan þar sem var vísað til fjárhagsaðstoðar frá ríkinu og mig langar til að halda á lofti því sjónarmiði að hér er um að ræða bætur fyrir tjón sem stjórnvöld hafa valdið þessum fyrirtækjum með aðgerðum sínum og sem fyrirtækin hafa sannarlega þurft að sýna fram á. Það má ekki gleymast í þessari umræðu. Ég tel því að málið eigi að vera lagt upp með þeim hætti sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar hefur lagt upp með.