viðspyrnustyrkir.
Virðulegur forseti. Ég vil í ljósi þeirra orða sem komu fram áðan hjá hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur hvetja hana og aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að styðja þá tillögu okkar að tekjufallsviðmiðið verði lækkað. Sérstaklega ef fólk lítur á þetta út frá einhverjum skaðabótaréttarlegum sjónarmiðum þá eru engin rök sem hníga að því að koma bara til móts við — í rauninni ætti þá að vera miklu lægra tekjufallsviðmið og miklu minna um skilyrði í þessu frumvarpi ef það er sú hugsun sem hér er lögð til grundvallar.