viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Ég tel sannarlega þörf á því að fara í þær aðgerðir sem boðaðar eru með þessu frumvarpi. Hins vegar finnst mér eðlilegt, um leið og styrkur og stuðningur er veittur við þessar aðstæður, að gera þær skýlausu kröfur til fyrirtækja sem njóta stuðnings að þau virði rétt launamanna á vinnumarkaði. Það á að vera alveg skýrt og við hér í þessum sal eigum að gera þær kröfur til þeirra fyrirtækja sem njóta stuðnings og einnig auðvitað að þau greiði skatta sína og skyldur hér á landi en fari ekki með ágóða í gegnum krókaleiðir í skattaskjól. Þess vegna tel ég mikilvægt að breytingartillögur minni hlutans verði allar samþykktar hér og hvet ykkur til þess.