viðspyrnustyrkir.
Herra forseti. Þessi ágæta breytingartillaga snýst um að lækka viðmið og tekjufall, bara frá og með ársbyrjun 2022, úr 40% niður í 30%, en með því erum við að leiðrétta fyrir hækkun verðlags frá viðmiðunartímanum árið 2017 án þess að auka eitthvað sérstaklega flækjustig við framkvæmd úrræðisins hjá Skattinum. Þetta er í takt við sjónarmið sem komu fram í umsögnum Félags atvinnurekenda, í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka atvinnulífsins og í umsögn samstöðuhóps einyrkja og lítilla fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þetta er breyting sem skiptir miklu máli til að koma ferðaþjónustufyrirtækjum yfir hjallann núna þessa erfiðustu mánuði ársins þegar vonandi hillir undir endalok þessa heimsfaraldurs, við skulum vona það. Ég skora á þingmenn allra flokka að styðja þessa tillögu og sýna að þeir standi með atvinnulífinu.