152. löggjafarþing — 41. fundur,  24. feb. 2022.

viðspyrnustyrkir.

291. mál
[13:47]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Stjórnarmeirihlutinn hefur áður fellt tillögur okkar í minni hluta og okkar í Samfylkingunni um að útiloka einstaklinga og fyrirtæki sem nýta sér skattaskjól og aflandsfélög frá stuðningi úr ríkissjóði vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Hér er ekki um slíkt ákvæði að ræða. Hér er einfaldlega gerð sú krafa, sú eðlilega lágmarkskrafa, að rekstraraðili sem nýtur viðspyrnustyrkja hafi staðið skil á svokölluðum CFC-skýrslum þegar það á við. Ég trúi ekki öðru, virðulegi forseti, en að stjórnarmeirihlutinn sé sammála okkur í minni hlutanum um þetta skilyrði. Það getur ekki verið eitthvert sérstakt keppikefli að fyrirtæki sem ekki fylgja lögum og reglum fái líka viðspyrnustyrki, lögum og reglum hvað þetta varðar, um skil á CFC-skýrslum.